BARNABÆKUR
![]() |
![]() |
![]() |
| Freyjugötu 14, 101 Reykjavík Sími 551 7667 Fax 552 6640 setberg@setberg.is |
|
1000 orð fyrir káta krakka Barnið skoðar, les og lærir og tekur þátt í atburðum daglegs lífs. Fjölskyldan fer í útilegu og á sólarströnd. Hvað heita farartækin og dýrin í sveitinni? Skemmtilegt í skólanum og fjölskyldugarðinum. Barnaherbergið, eldhúsið og setustofan heima. Ekki bara 1000 orð á íslensku og ensku heldur líka meira en 1000 líflegar litmyndir. Alltaf eitthvað áhugavert á hverri síðu. Glæsileg orðabók fyrir káta krakka. Bók í stóru broti. Orðin á íslensku og ensku.Verð 2.750 kr. |
|
![]() |
Fyrsta orðabókin mín Richard ScarryÞetta er sannkölluð orðabók barnanna. Eitt þúsund litmyndir og mörg þúsund orð á íslensku, dönsku og ensku. Verð 2.450 kr. |
![]() |
Fyrstu 1000 orðin Tæpar eitt hundrað síður með 1000 orðum og 1150 litmyndum. Litlum börnum þykir gaman að leita að Badda bangsa sem hefur falið sig á blaðsíðum bókarinnar og spjalla um það sem þau sjá. Textar með spurningum hvetja börnin til að skoða myndirnar enn betur. Og eins og Baddi bangsi segir: "Í hvert sinn sem þú skoðar bókina mína sérðu eitthvað nýtt. Ég fel mig á myndunum, reyndu að finna mig." Bókin er ómetanleg hjálp til að kenna börnum að stafa og lesa létt orð.Verð 2.450 kr. |
![]() |
Fyrstu 500 orðin Þetta er sannkölluð orðabók barnanna. Fjöldi litmynda prýða hverja síðu í bókinni. Bókin hjálpar yngstu börnunum að þekkja umhverfi sitt og hlutina í kringum sig. Hún er ómetanleg hjálp til að kenna börnum að stafa og lesa létt orð.Ekki bara 500 orð heldur líka nærri 600 litmyndir. Verð 1.990 kr. |
![]() |
Allra fyrstu orðin mín Björt og litrík harðspjaldabók fyrir yngstu börnin. Bók sem vekur athygli á hlutunum heima, fötin eru skoðuð og leikföngin, og ekki má gleyma dýrunum. Hér er bók sem foreldrar ættu að skoða með litlum börnum, njóta ánægjulegra samverustunda og um leið læra börnin allra fyrstu orðin. Fallegar, litríkar myndir hjálpa börnum að tengja saman orð og mynd.Verð 1.250 kr. |
|
Ég vil læra að lesa Þessi harðspjaldabók, Ég vil læra að lesa, kennir börnum stafi og einföld orð. Fallegar og litríkar teikningar auðga ímyndunarafl barna og hjálpa til að tengja stafi, orð og myndir.Verð 1.250 kr. |
|
Allt í rugli: Kátir krakkar Flettið þessari óvenjulegu og litríku skiptimyndabók. Hver blaðsíða er í 3 hlutum. Þess vegna getið þið sjálf búið til alls konar sniðugar sögur með því að skipta um myndir og texta.Verð 990 kr. |
![]() |
Allt í rugli: Rugludallar Hver blaðsíða er í þremur hlutum. Búið sjálf til eigin sögu með því að skipta um myndir og texta, - eða finnið liti, búninga, orð og setningar, sem eiga við ævintýralega persónur. Góða skemmtun!Verð 990 kr. |
![]() |
Bra-bra, ungi litli - tístibók Ýttu á hnappinn og andarunginn kvakar. Bók fyrir börn sem eru byrjuð að fá áhuga á myndabókum með skýrum texta.Verð 1.495 kr. |
![]() |
Dýrin fara í ferðalag Þrjár bækur í boxi.Dýrin ferðast í vögnum sem jafnframt eru litlar bækur. Þeim er raðað upp og krækt saman á einfaldan hátt. Litlar hendur ráða auðveldlega við verkið. Hver bók kynnir ákveðin dýr frá mismunandi heimshlutum. Dýrin aka síðan um og hitta marga vini sína í ferðinni. Leikfang og 3 bækur sem ung börn dunda við og hafa ánægju af. Verð 1.990 kr. |
![]() |
Ég get lesið – Barnasögur Ég get lesið er bókaröð sem ætluð er börnum til undirbúnings skólagöngu. Litríkar myndir fylgja textanum. Sögurnar höfða til ungra barna og hvetja til lestrar með foreldrum. Safnið öllum bókunum fjórum úr þessari ritröð.Verð 1.250 kr. |
![]() |
Ég get lesið – Kvöldsögur Sögurnar höfða til ungra barna og hvetja til lestrar með foreldrum. Stórt letur er notað og litríkar myndir fylgja textanum.Verð 1.250 kr. |
![]() |
Ég get lesið – Skemmtisögur Ætluð börnum til undirbúnings skólagöngu. Stórt letur og litríkar myndir. Með lestri bókanna gefst foreldrum gott tækifæri til samveru með börnum sínum.Verð 1.250 kr. |
![]() |
Ég get lesið – Ævintýri Litríkar myndir fylgja textanum og flýta fyrir að börnin læri að þekkja orðin. Ég get lesið er bókaröð sem ætluð er börnum til undirbúnings skólagöngu. Safnið öllum bókunum fjórum úr þessari ritröð.Verð 1.250 kr. |
![]() |
Farartæki af öllum gerðum Öll börn hafa gaman af nútíma farartækjum. Sportbílar, mótorhjól og strætisvagnar bruna um borgir og bæi, flugvélar og eftirlitsþyrlur svífa um loftin. Trukkar, kranabílar og steypubílar aka um byggingasvæði og jarðýtur, beltagröfur og traktorar vinna í sveitum landsins. Litríkar myndir prýða þessa harðapjaldabók og gera hana aðlaðandi fyrir yngstu kynslóðina.Verð 1.590 kr. |
![]() |
Hver var að flauta? - Baðbók Baðbækur fyrir yngstu börnin eru skemmtilegir leikfélagar í baðinu, lauginni eða pottinum. Börn og fullorðnir skoða fjörlegar teikningar, þrýsta á flautuna og líkja eftir hljóðum véla og farartækja. Aðrar baðbækur í þessum bókaflokki heita: Hvað segja dýrin? og Ungi lærir að synda.Verð 1.750 kr. |
![]() |
Í sveitinni - Saga með segulmyndum Á bóndabænum er traktor, hestar, kýr og kindur, köttur, hundur og önnur húsdýr. Bjarni bóndi er önnum kafinn við búskapinn. Barnið fylgir texta bókar, en getur líka búið til sína eigin sögu og komið Bjarna bónda, tækjum og dýrum fyrir þar sem við á. Lærdómsrík barnabók með tuttugu segulmyndum sem hægt er að flytja að vild á milli blaðsíðna.Verð 2.290 kr. |
|
Leiktu við Fibba Fibbi litli er afar forvitinn hvolpur eins og allir hvolpar. Dag nokkurn kemur hann auga á skrýtna silfurslóð. Hver á hana og hvert liggur leiðin? Fylgdu glitrandi, upphleyptri slóðinni með fingrunum og leiktu við Fibba.Verð 1.250 kr. |
![]() |
Lesum saman - 15 bangsasögur Allar fimmtán sögur bókarinnar eru prýddar fjölda litmynda. Sögurnar um Bangsa, Vinnubirnu, Lögreglubjörn, Kennslubirnu og Káta trúð efla ímyndunarafl barnsins og löngun þess til að skoða og lesa. Fallegar myndir og skýr texti.128 blaðsíður. Verð 1.650 kr. |
|
Lesum saman - 15 krakkasögur Hér birtast 15 skemmtilegar sögur með skýru letri og fjölda fagurlitra mynda. Sögurnar eru stuttar og auðlesnar hverju barni. Sögurnar um Gorma-Gumma, Geimfarann, Vélmennið, Kisulóru og allar hinar - ásamt upprifjun á orðum í lok hverrar sögu, auka orðaforðann og hvetja börnin til að lesa meira. Bók sem mun fjölga ánægjustundunum.Verð 1.650 kr. |
![]() |
Mjallhvít Einu sinni var falleg kóngsdóttir. Hörund hennar var sem snjór. Þess vegna var hún kölluð Mjallhvít. Drottningin, stjúpa hennar, var afbrýðisöm og hún var vond við hana. Ævintýrið um Mjallhvít og dvergana sjö er hér endursagt, skreytt með glitrandi myndum.Verð 1.550 kr. |
![]() |
Öskubuska Öskubuska var góð og falleg stúlka, en stjúpa hennar og systur voru vondar við hana. Dag nokkurn kom sendiboði hirðarinnar og tilkynnti um dansleik í kóngshöllinni. Ævintýrið um Öskubusku er hér endursagt, skreytt glitrandi myndum.Verð 1.550 kr. |
![]() |
Rósalind prinsessa - 1. bók Þetta er fyrsta bókin í flokknum um Rósalind prinsessu.Rósalind þykir vænt um dýrin. Þau leika sér saman allan daginn og þess vegna hafði hún næstum gleymt boðinu á fyrsta dísaballið. En Rósalind á engan sparikjól að fara í. Dýrin, vinir hennar, taka til sinna ráða. Gylfi grís, Óskar bjalla, broddgöltur, Klara mús og litli froskur sauma glæsilegan ballkjól handa Rósalind. Heillandi prinsessubók með gliti á öllum blaðsíðum, alvöru sendibréfi og fallegri kórónu. Verð 2.290 kr. |
![]() |
Rósalind prinsessa í jólaskapi Jólin nálgast óðum og enginn er snjórinn. Gott að Rósalind prinsessa getur notað töfrakúluna sína til að töfra fram snjóinn. Þessi bók er mikill gleðigjafi á aðventu og jólum. Í henni er ýmislegt sem kemur litlum prinsessum á óvart eins og límmiðar, fellimynd, leyniuppskrift Rósalindar og fallegur órói til að setja saman.Verð 2.290 kr. |
![]() |
Rósalind prinsessa og litla hafmeyjan Rósalind prinsessa lendir í ævintýrum og kynnist Júlíu hafmeyju. Þær reyna að bjarga sundkennaranum sem hvarf ofan í vatnið. Tekst þeim þetta? Júlía og Rósalind verða góðar vinkonur og eignast leyndarmál saman. Heillandi myndabók með ævintýralegum litmyndum og gliti á öllum blaðsíðum ásamt fallegu höfuðskarti.Verð 2.290 kr. |
![]() |
Rósalind prinsessa - ballettmærin litla Rósalind prinsessa og vinkonur hennar frétta af danskeppni og langar að taka þátt í henni. Þær leita sér að danskennara, en ýmislegt óvenjulegt gerist við undirbúninginn. Hvernig tekst til - komast Rósalind, Sirrý, Klara og hinar vinkonur hennar í keppnina? Skemmtileg bók með gliti á hverri blaðsíðu og óvæntri gjöf: Fallegu hárbandi með perluskreyttu blómi handa lítilli prinsessu.Verð 2.290 kr. |
![]() |
Rósalind prinsessa og einhyrningurinn Rósalind prinsessa var að tína epli í garðinum sínum. Þá kom hún auga á undurfagran hest með horn út úr enninu. Valdimar prins hafði ferðast á baki einhyrningsins úr hinu fjarlæga Snælandi. Einhyrningurinn Einar var orðinn veikur og Snæland farið að bráðna. Róslind og vinir hennar lögðu af stað til hjálpar. Tekst þeim að lækna Einar einhyrning og bjarga hinu einstaka Snælandi? Heillandi bók með ævintýralegum litmyndum og gliti á öllum blaðsíðum. Svo er lítil gjöf aftast í bókinni.Verð 2.290 kr. |
![]() |
Rósalind prinsessa og höfrungurinn litli Ný spennandi bók um Rósalind prinsessu. Í lok hverrar bókar er svo hálsmen handa litilli prinsessu. Ennþá eru fáanlegir fimm aðrir titlar um Rósalind og vini hennar.Verð 2.950 kr. |
![]() |
Saga og púsluspil: Hrói Höttur Hér eru góðir kunningjar á ferð: Hrói höttur, Litli Jón og Ríkharður ljónshjarta. Ævintýrið lestu á vinstri blaðsíðunum, en svo eru 6 púsluspil á hægri síðunum, sem er skemmtilegur hluti ævintýrsins.Verð 1.490 kr. |
![]() |
Saga og púsluspil: Stígvélaði kötturinn Þetta þekkta ævintýri, skreytt litríkum myndum, lestu á vinstri síðum bókarinnar. En á hægri síðunum eru6 púsluspil, sem gera bókina ennþá skemmtilegri. Verð 1.490 kr. |
![]() |
Ævintýri barnanna Þessi sívinsæla bók er nú komin út í nýrri útgáfu. Margir minnast hennar sem háu og mjóu bókarinnar með skemmtilegu og sígildu ævintýrunum eins og: Litla gulan hænan, Ungi litli, Töfrasprotinn, Óskirnar þrjár og tuttugu aðrar sögur og ævintýri. Bókin er litprentuð og ríkulega myndskreytt.Verð 2.950 kr. |
|
Sígild ævintýri - bók 1 Í bókinni er 3 ævintýri: Hans og Gréta, Þrír grísir og Aladdín og töfrlalampinn. Greinilegt letur, nærri 100 síður og litmynd á hverri blaðsíðu.Verð 990 kr. |
|
Sígild ævintýri - bók 2 Þessi 3 ævintýri eru í bókinni: Öskubuska, Lísa í Undralandi og Þyrnirós. Læsileg bók og litrík.Verð 990 kr. |
|
Sígild ævintýri - bók 3 Hér er að finna þessi 3 þekktu ævintýri: Mjallhvít, Gullbrá og bangsarnir og Rauðhetta. Stórt letur og litmynd á hverri síðu.Verð 990 kr. |
|
Sígild ævintýri - bók 4 Í bókinni eru þessi 3 ævintýri: Ljóti andarunginn, Gosi og Galdrakarlinn frá Oz. Tæplega 100 blaðsíður, litríkar teikningar og læsilegt letur.Verð 990 kr. |
![]() |
500 þrautir, leikir og gátur Í bókinni eru fjölbreytileg verkefni svo sem talnaþrautir, orðagátur og íslenskir málshættir, teikni- og litaþrautir. Einnnig önnur heilabrot sem þjálfa börn og unglinga í hugsun og leik. Það er alltaf gaman að glíma við gátur og þrautir og finna lausnir við spurningum af ýmsum toga. Góða skemmtun.Verð 1.950 kr. |
![]() |
250 þrautir, leikir og gátur Í bókinni eru fjölbreytileg verkefni, svo sem talnaþrautir, orðagátur, teikni- og litaþrautir. Einnig önnur heilabrot sem þjálfa börn og unglinga í hugsun og leik. Fjölbreytt, falleg tómstundabók.Verð 1.650 kr. |
![]() |
Sudoku nr.1 Glíma við gátur, tákn og tölur er skemmtileg dægradvöl fyrir börn og byrjendur. Sudoku er heilabrot sem flestir hafa bæði gagn og gaman af, þau efla færni og einbeitingu og geta aukið skilning á stærðfræði og rökrænni hugsun. Með einföldum gátum sem þyngjast smám saman í bókinni eru börn og byrjendur leidd inn í heillandi heim Sudoku.Verð 695 kr. |
![]() |
Sudoku nr.2 Sudoku er heilabrot sem flestir hafa bæði gagn og gaman af, þau efla færni og einbeitingu og geta aukið skilning á stærðfræði og rökrænni hugsun. Með einföldum gátum sem þyngjast smám saman í bókinni eru börn og byrjendur leidd inn í heillandi heim Sudoku. Glíma við gátur, tákn og tölur er skemmtileg dægradvöl fyrir börn og byrjendur.Verð 695 kr. |
![]() |
Tómstundabókin Börnum þykir alltaf gaman að fást við föndur, gátur og þrautir. Í bókinni eru fjölbreytileg verkefni, talnaþrautir, teikningar, litun og gátur. Verkefnin hæfa vel börnum og þjálfa þau í hugsun og leik.Verð 1.650 kr. |
|
Dýrin stór og smá Hvar er Tjalli simpansi og brúnu birnirnir? Selir og mörgæsir skvettast í allar áttir. Hálslangi gíraffinn og litla skjaldbakan. Stórir fílar, ljón og tígrisdýr – og loks allar litlu kanínurnar. Litrík harðspjaldabók sem gleður börnin.Verð 1.390 kr. |
![]() |
Fyrstu dýrin mín Sagan um dýrin er kjörin til að kynna börnum fjölbreytta dýraheima. Á vinstri blaðsíðu eru myndir og dýrin nefnd með nafni, en á hægri síðu geta börnin reynt að finna sömu dýrin. Glitrandi og hrífandi myndir á hverri síðu.Verð 1.690 kr. |
![]() |
Fyrstu orðin mín Agga önd er stöðugt að leita að nýjum orðum. Hún sér alltaf eitthvað nýtt bæði í garðinum, á ströndinni, í dýragarðinum og sveitinni. Harðspjaldabók sem foreldrar ættu að skoða með börnum sínum og hjálpa þeim að læra ný orð. Glitrandi og hrífandi myndir á hverri síðu.Verð 1.690 kr. |
![]() |
Í skólanum Þetta er harðspjaldabók með orðahjólum. Börnin snúa hjólunum í bókinni, - og alltaf birtast ný orð og nýjar myndir.Verð 920 kr. |
![]() |
Íslensku dýrin Sígild harðspjaldabók með glæsilegum dýramyndumeftir Halldór Pétursson. Verð 750 kr. |
![]() |
Leikföngin mín - Nikkubók Kranabíll, mótorhjól og kappakstursbíll, jeppi og mokstursbíll. Hér er líka sjúkrabíll, trukkur og dráttarvél og ekki má gleyma flugvélinni. Harðspjaldabók sem barnið dregur út eins og harmónikku. Þess vegna er þetta nikkubók.Verð 610 kr. |
![]() |
Reiknum saman - Samlagning Til að gera reikninginn skemmtilegri eru í bókinni 320 litprentaðir límmiðar. Barnið finnur miða með réttri lausn og lætur pabba eða mömmu eða einhvern annan staðfesta að rétt sé reiknað. Tekur síðan stjörnulaga verðlaunamiða og límir fyrir aftan svarið. Einfaldar æfingar - og svo er líka gaman.Verð 750 kr. |
![]() |
Reiknum saman - Frádráttur Létt æfingadæmi í frádrætti. Og til að gera reikninginn skemmtilegri eru í bókinni 320 litprentaðir límmiðar. Barnið finnur miða með réttri lausn og lætur pabba eða mömmu eða einhvern annan staðfesta að rétt sé reiknað. Tekur síðan stjörnulaga verðlaunamiða og límir fyrir aftan svarið. Ekki bara æfingadæmi í frádrætti heldur líka leikur með litprentaða límmiða.Verð 750 kr. |
|
Leikur með stafi og orð nr. 1 Þessi litríka límmiðabók hjálpar börnum til að skilja orð og stafi rétt. Verkefnin auka sjálfstraust þeirra og áræðni. Límmiðar með táknum og bókstöfum , sem börnin þurfa að setja á réttan stað, æfa samhæfni þeirra. Við notkun bókarinnar þjálfast þau í málskilningi og réttritun.Verð 740 kr. |
|
Leikur með stafi og orð nr. 2 Límmiðar með táknum og bókstöfum , sem börnin þurfa að setja á réttan stað, æfa samhæfni þeirra. Við notkun bókarinnar þjálfast þau í málskilningi og réttritun. Bókin hjálpar börnum til að skilja orð og stafi rétt.... og orðaforðinn eykst.Verð 740 kr. |
|
Límmyndabókin Með íslenskum og enskum orðum.Í þessari skemmtilegu bók tekur barnið þátt í atburðum daglegs lífs: Fer í útilegu, verslar í kjöbúðinni og leikfangabúðinni, er á baðströndinni, heimsækir fjölskyldugarðinn, sirkusinn, og dýragarðinn og fer upp í sveit. Hver síða er skýrt upp sett og í bókinni er mikill fjöldi límmynda sem setja skal á sinn rétta stað. Verð 1.350 kr. |
![]() |
Skoðum lesum og lærum Einstaklega litrík, falleg og fræðandi fyrir unga lesendur. Í bókinni eru spennandi myndir og texti, gægjugöt fyrir litla fingur, fjölbreytilegar myndir og orð sem ýta undir málþroska. Leyniblaðsíður og felumyndir koma á óvart.Verð 1.875 kr. |
![]() |
Nr.1 Snúður og Snælda Snúði leiðist. Hann er einn heima. Lóa fór eitthvað í burtu með pabba og mömmu.Bing! Bang! heyrist allt í einu í dyrabjöllunni. Þarna er Snælda frænka komin í heimsókn. Nú er sannarlega hægt að leika sér: Kapphlaup á hjólaskautum, baka pönnukökur og jafnvel sveifla sér í ljósakrónunni, - en það hefðu Snúður og Snælda aldrei átt að gera. Verð 590 kr. |
![]() |
Nr. 2 Kolur, kunningi Snúðs og Snældu Stóri hundurinn sem gætti kindanna var í slæmu skapi. Eitt lambið var týnt. "Kolur minn, reyndu að finna lambið". Kolur leitað að Gimbu allan daginn fram á kvöld. Allt í einu sér Kolur tvö lýsandi augu í myrkrinu. Það var úlfurinnn. Kolur er dálítið hræddur og Gimba er líka hrædd, því úlfurinn er með svo stórar tennur.En Gimba og Kolur verða að komast yfir brúna burt frá úlfinum og heim. Verð 590 kr. |
![]() |
Nr. 3 Snúður og Snælda og Lappi í skólanum Það er komið haust. Lappi hlakkar til að byrja í skólanum. Hann er montinn af því að eiga rauða skólatösku. Í skólanum hittir hann skemmtilega félaga: Snúð og Snældu og Kóp.Snúður er bestur í leikfimi, Lappi er góður í landafræði, en Snælda er prakkarinn í bekknum. Og nú skaltu skoða hvernig þau leika sér saman í feluleik og höfrungahlaupi. Verð 590 kr. |
![]() |
Nr. 4 Snúður og Snælda í jólaskapi Jólin koma. Vinirnir Snúður og Lappi kaupa stórt og fallegt jólatré. En hvað er til ráða? Það kemst ekki fyrir í stofunni. Mýsnar kunna ráð við því.Saman skreyta þau jólatréð. En hvað skyldu þau fá í jólgjöf? Og hver fær möndluna í jólagrautnum? Snúður og Snælda sjá um jólasteikina. Þetta eru skemmtileg jól hjá Kóp og Lappa og Snúð og Snældu. Verð 590 kr. |
![]() |
Nr. 5 Kópur, vinur Snúðs og Snældu Kópur er skemmtilegur hundur. Hann fer alltaf snemma á fætur. - Vaknaðu, kallar Mósa Mús, og Kópur stekkur fram úr rúminu. Þá er það morgunleikfimi: Anda djúpt, arma rétt. Kópur ætlar upp í sveit á reiðhjólinu sínu. En þarna kemur kisa og truflar hann. Bang! Og hann keyrir á tré. Aumingja Kópur, hann er með reifaðar hendur og höfuð. En kisa spilar við hann til að stytta honum stundirnar.Verð 590 kr. |
![]() |
Nr. 6 Snúður skiptir um hlutverk Þú veist að Snúður er hvítur, mjúkur og fallegur köttur.En Snúði leiðist af því að hann á enga leikfélaga. Fiðrildið vill ekki leika við hann né heldur músin og ekki heldur fuglarnir. Aumingja Snúður á engan vin. Enginn vill vera með honum. Snúður fer að gráta. En Snúður sér málningafötu standa inni í gamla skúrnum. Nú veit Snúður hvað hann á að gera. Verð 590 kr. |
![]() |
Nr. 7 Snúður og Snælda skemmta sér Snúður varar sig ekki á Snældu. Snúður kemur á fleygiferð og fær snjóbolta í hnakkann. Veistu hver kastaði snjóboltanum í Snúð? "Eigum við að koma í kapp á sleðanum? Ég veit að ég vinn", segir Snælda.Snúður og Snælda fara heim í skíðaskálann. "Við skulum spila Svarta Pétur", segir Snúður. Snælda er slungin við spilamennskuna en stundum svíkur hún lit og svindlar. Verð 590 kr. |
![]() |
Nr. 8 Snúður og Snælda fara í ferðalag Nú eru Snúður og Snælda komin í sumarleyfi og tjalda á fallegum stað. Allt í einu kemur vindhviða og feikir tjaldinu í háaloft, en sem betur fer kemur það niður aftur."Við verðum að veiða fisk í matinn", segir Snúður, en það gengur heldur brösuglega, þeir fá ekki bröndu. Og græni froskurinn hlær. Hvað er nú til ráða? Snúður og Snælda ákveða að verða vinir skógardýranna. Verð 590 kr. |
![]() |
Gutti og galdramaðurinn Höfundur: Enid BlytonGaldramaðurinn Klaufi er ávallt að gera mistök í galdraseyðum sínum. Einn góðan veðurdag klúðrar hann mikilvægum töfrum. Klaufi lendir í skelfilegum vandræðum. en til allrar hamingju hefur aðstoðarmaður hans, kanínan Gutti, einnig verið að læra að galdra og... Verð 390 kr. |
![]() |
Töfraskórnir Eftir Enid BlytonDag nokkurn var Vilhjálmur að leita að jarðaberjum í fjallinu. Hann festi stígvéli sín í drullusvaði. Honum til mikillar undrunar sá hann fyrir framan sig rauða skó og þá hófust ógleymanleg ævintýri. Verð 390 kr. |
![]() |
Vinsæl ævintýri: Litla Hafmeyjan Eitt sinn sat lítil hafmeyja á ströndinni. Þá kom hún auga á fríðasta mann sem hún hafði augum litið. Hann var konungssonur. Litla hafmeyjan vildi fá tvo fætur og verða manneskja. Henni varð að ósk sinni. En ekki fékk hún konungssoninn.Nú yrði hún dæmd til að ráfa um jörðina með stöðugan verk í fótunum. Litla hafmeyjan ákvað að steypa sér freyðandi í öldurnar og hún var ekki lengur með fætur heldur hafmeyja með sporð. Verð 460 kr. |