Setberg 60 ára
21.11.2012Setberg gaf Barnaspítala Hringsins 100 bókatitla og eina milljón króna.
Setberg afhenti Barnaspítala Hringsins að gjöf 100 titla barnabóka sem munu gleðja unga lesendur á sjúkrahúsinu og hins vegar peningagjöf að fjárhæð ein milljón króna sem verður notuð til þess að kaupa nauðsynlegan tækjabúnað. Tilefni gjafanna er 60 ára afmæli bókaútgáfunnar.
Setberg hefur starfað frá árinu 1952 þó fyrsta bók hafi verið gefin út árið 1960 og er ein elsta bókaútgáfa landsins. Hún hefur verið rekin af Arnbirni Kristinssyni samfellt í 60 ár. Setberg er í eigu Arnbjörns og eiginkonu hans, Ragnhildar Björnsson. Þau afhentu gjöfina á leikstofu Barnaspítala Hringsins fimmtudaginn 1. nóvember 2012.